Við blásum nýju lífi í vannýttar eignir í hjarta Reykjavíkur

ALVA Fasteignir er fasteignaþróunarfélag sem blæs nýju lífi í vannýttar eignir í Reykjavík. Við þróum og rekum fjölbreytt safn — hótel, hótelíbúðir, íbúðir í langtímaleigu og atvinnurými — með áherslu á gæði, vel staðsettar eignir og langtíma verðmætasköpun.

Hluti af fjárfestingafélaginu ALVA Capital — sem fjárfestir í fasteignum og fyrirtækjum sem það trúir á.

Samhliða ALVA Fasteignum rekur samstæðan ALVA Hotels (hótelrekstur), ALVA Framkvæmdir (byggingarrekstur) og Inkasso. Þessi samsetning gefur ALVA Fasteignum einstakan styrk — allt frá kaupum og hönnun til framkvæmda og daglegs reksturs er innan samstæðunnar.

Okkar nálgun

Þrjár stoðir verðmætasköpunar.

Frá kaupum til reksturs — leiðin sem ALVA fer þegar við blásum nýju lífi í vannýttar eignir.

01

Valdar eignir

Við leggjum mikla vinnu í að finna réttu eignirnar — vannýttar fasteignir með skýrt tækifæri til uppbyggingar. Aðeins lítill hluti af því sem er skoðað kemst í safnið.

02

Þróun og uppbygging

Innviðir og þekking til að umbreyta eignum — með framkvæmdum, skipulags- og rekstrarbreytingum sem nýta fulla möguleika hverrar byggingar.

03

Fjölbreyttur rekstur

Frá hótelum og hótelíbúðum til íbúða og atvinnurýmis í langtímaleigu — fjölbreytt eignasafn sem dreifir áhættu og veitir sveigjanleika.

Eignasafn

Sumar af okkar eignum

Rauðarárstígur 27-29, Candlewood Suites Reykjavik by IHG
Hótel · IHG

Rauðarárstígur 27–29

Hér er rekið Candlewood Suites Reykjavik by IHG — fyrsta IHG-hótelið á Íslandi, rekið með sérleyfi frá IHG hótelkeðjunni. Á jarðhæð er kokteilskóli og hárgreiðslustofa í langtímaleigu — lifandi atvinnurými sem nýtir bygginguna til fulls.

Stærð2.038 m²
Einingar55
Brautarholt 22-24, ALVA Hotel Brautarholti
Hótel

Brautarholt 22–24

Hér er rekið ALVA Hotel Brautarholti — fullbúið „self check-in" hótel í hjarta Reykjavíkur með áherslu á þægindi og staðsetningu.

Stærð1.690 m²
Einingar55
Hallveigarstígur 1, ALVA Apartments
Hótelíbúðir + íbúðir

Hallveigarstígur 1

Hér eru reknar ALVA Apartments — lúxus hótelíbúðir og íbúðir í miðborg Reykjavíkur með „self check-in" þjónustu, frá árinu 2021.

Stærð638 m²
Einingar13
Snorrabraut 85, Snorrabraut Apartments
Hótelíbúðir · skammtímaleiga

Snorrabraut 85

Hér eru reknar Snorrabraut Apartments by ALVA — vandaðar hótelíbúðir í líflegu hverfi í 105 Reykjavík. Allar einingar í skammtímaleigu.

Stærð365 m²
Einingar7
Stangarhylur 3 og 3a
Atvinnurými · langtímaleiga

Stangarhylur 3 & 3A

Vinnustofur, íbúðir og gistiheimili — fjölbreytt eignasafn í langtímaleigu í Stangarhyl.

Stærð1.523 m²
Einingar41
Byggðarendi 6
Íbúðir · langtímaleiga

Byggðarendi 6

Vandað íbúðarhúsnæði í Reykjavík sem nýtt er í langtímaleigu — sjö íbúðir í rólegu hverfi.

Stærð336 m²
Einingar7
Háaleitisbraut 1, Valhöll Þróunarverkefni
Hótel · í þróun

Háaleitisbraut 1 — Valhöll

Sögufrægt hús reist árið 1975. ALVA Fasteignir keypti Valhöll árið 2026 og hefur boðað þróun byggingarinnar í hótel með allt að 90 herbergjum með nýrri hæð ofan á húsið. Á jarðhæð og í kjallara koma veitinga- og þjónusturými sem opna bygginguna fyrir almenningi. ALVA tók við eigninni árið 2026.

Áætlaðar einingar90+
StaðaÍ þróun
Í fréttum
Vísir.is
Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll
Lesa frétt →
19
Eignir
10.583m²
Heildar fermetrar
190
Einingar í rekstri
90+
Einingar í þróun

Heildartölur ná yfir allt eignasafn ALVA Fasteignir á Íslandi og erlendis. Hér að ofan eru valdar eignir sýndar.

Fyrri eignir

Ármúli 5 Seld 2025

Ármúli 5

Hér var áður rekið ALVA Hotel. Hótelið var langt frá því að vera fullklárað við kaup — við lukum uppbyggingu og rákum hótelið í rúm tvö ár áður en eignin var seld árið 2025.

Stærð2.003 m²

Staðsetning

Laugavegur 182
105 Reykjavík

Hafa samband

leiga@alva.is